Skip to product information
1 of 6

RawForce

Silki svefngríma

Silki svefngríma

Regular price 2.990 ISK
Regular price Sale price 2.990 ISK
Afsláttur Uppselt
Litir

Silkimjúk svefngríma fyrir dýpri og betri svefn
Lúxus svefngríma úr 100% Mulberry silki sem umbreytir svefninum þínum. Mulberry silki er þekkt sem ein verðmætasta og mjúkasta klæðning sem finnst – náttúrulegt, próteinríkt og ofnæmislaust efni sem andar og fer einstaklega vel með húðina.

Svefngríman okkar er framleidd úr 100% Mulberry silki, 22 momme, 6A gæðaflokki og OEKO-TEX® vottaðri framleiðslu. 6A er hæsti mögulegi gæðaflokkur silkis – fyrir þá sem sætta sig aðeins við það besta.

  • Engin skaðleg eða kemísk efni
  • Heldur raka húðarinnar
  • Dregur úr hár- og andlitsnúningi
  • Ofnæmislaust og andar
  • Frábær gjafavara

Silki fyrir húðina þína

Augnsvæðið er viðkvæmasta húð andlitsins. Silki dregur ekki raka úr húðinni eins og bómull getur gert og hjálpar þannig til við að viðhalda náttúrulegu rakajafnvægi yfir nóttina.

Slétt yfirborð silkisins dregur úr núningi sem getur annars stuðlað að fínlínum og ertingu. Svefngríman hjálpar einnig við að halda húðvörum á húðinni – ekki í efninu.

Þeir sem þjást af exemi, ofnæmi eða viðkvæmri húð finna oft mikinn mun þar sem silki er náttúrulega ofnæmislaust, kælandi og andar vel.

Silki er byggt úr próteinríkum þráðum sem kallast sericin sem hjálpar til við að minnka ertingu og dreifa náttúrulegum olíum húðarinnar jafnt.

Gæði silkisins skipta máli

Góð þumalputtaregla er sú að ef fyrirtæki greina ekki gæðaflokk eða momme á silkivörunum sínum, þá er varan líklega framleidd með lélegum gæðum.

6A gæðaflokkur: Silkigæði er flokkað eftir einkunnarkerfi A til F, þar sem 6A er best. RawForce koddaverin eru aðeins framleidd úr 6A silki sem er gæðamesta og besta silkið. Þetta er ætlað þeim sem sætta sig aðeins við það besta. Silki sem fær einkunnina A er hágæða langþráða silki úr lifruhýði sem er mjög hreint og viðheldur gæðunum um langa tíð.

22 Momme: Mommes(mm), er eining sem er notuð til að mæla gæði silkiefna. Því meira momme samsvarar meiri þéttleika. 11-19 momme þykir nógu gott, 22 telst hágæða og endingargott. 30 eða hærra þykir of þétt fyrir marga.

Mulberry silki: Mórberjasilki er sérstök tegund af silki sem framleidd er af silkiormum sem eru eingöngu fóðraðir á laufum mórberjatjáa. Mórberjasilkiþræðir eru þeir bestu á jörðinni.

Þvottaleiðbeiningar

Silki má alls ekki:
✘ Setja í þurrkara
✘ Þvo með heitu vatni
✘ Nota klór
✘ Nota þvottaefni úr dufti
✘ Nota efnahreinsun með trichloroethylene

Þvegið með þvottavél:
✔ Þvo í höndunum eða í þvottapoka
✔ Nota milt, fljótandi þvottaefni fyrir silki
✔ Þvo eingöngu í köldu vatni
✔ Nota silki-/viðkvæma stillingu ef þvegið í vél
✔ Láta loftþorna

Afhending

Við sendum með Dropp og póstinum.

Það tekur yfirleitt 0-2 virka daga fyrir pöntunina að berast til þín 📦

Skoða vöru