Skilaréttur

Skil eða skipti á vöru
Viðskiptavinir okkar hafa 14 daga frá því samningur kemst á til að hætta við kaup á ógallaðri vöru að því tilskildu að þeir hafi ekki notað vöruna, varan sé heil og í upprunalegu ástandi og verðmiðar áfastir. Framvísa þarf kvittun við skil eða skipti á vöru. Ef viðskiptavinur vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru er gefin út inneignarnóta sem hægt er að nota í vefverslun.

Við skil er best að hafa samband við okkur hér: https://rawforce.is/pages/contact

Passa þarf að hafa eftirfarandi upplýsingar:

  1. Fullt nafn
  2. Heimilisfang svo varan skili sér rétt.
  3. Netfang og sími.
  4. Greiðslukvittun sem fylgdi upphaflegum kaupum.
  5. Ástæða fyrir skilum.
  6. Hvaða vöru viðkomandi vill í staðinn.
  7. Ef greitt var með netgíró þarf að taka það fram; senda kennitölu og einnig kröfunúmer er nauðsyn svo hægt sé að bakfæra.

Sé nánari upplýsinga þörf mun seljandi hafa samband við kaupanda.

Vilji kaupandi skipta vörunni í aðra vöru sem er til á lager er jafnframt hægt að óska eftir nýrri sendingu. Kostnaður við endursendingu og nýja sendingu vöru vegna skipta á ógallaðri vöru er á ábyrgð og kostnað viðskiptavinar. Ef viðskiptavinur endursendir og skilar vöru án þess að greiða fyrir sendingarkostnaðinn verður hann dreginn frá keyptri upphæð.

Skilyrði er að skrá pakkann svo hann týnist ekki hjá Póstinum. Ef pakki týnist sem sendur var til baka, þá er það á ábyrgð kaupanda.

Vöru sem keypt er á útsölu/afslætti/outlet fæst hvorki skilað né skipt.