Persónuvernd
Persónulegar upplýsingar sem við fáum frá þér
Þegar þú verslar í vefverslun RawForce söfnum við þeim upplýsingum sem þú veitir okkur, svo sem nafni, netfangi, heimilisfangi og símanúmeri. Upplýsingarnar eru notaðar til að afgreiða pantanir, annast afhendingu, veita þjónustu og uppfylla lagalegar skyldur okkar.
Ef þú stofnar viðskiptareikning hjá okkur geymum við þær upplýsingar sem þú skráir til að geta veitt þér þjónustu og auðveldað framtíðarviðskipti.
Greiðslur með kortum eru afgreiddar í gegnum Teya og RawForce geymir ekki kortaupplýsingar þínar á eigin kerfum. Kortaupplýsingar eru meðhöndlaðar í öruggum greiðslukerfum greiðsluþjónustuaðila í tengslum við afgreiðslu greiðslunnar.
Fyrir nánari upplýsingar um meðhöndlun greiðslu- og kortaupplýsinga vísum við til skilmála og persónuverndarstefnu Teya.
Við meðhöndlum persónuupplýsingar í samræmi við gildandi lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.