RawForce
Silki Gjafasett
Silki Gjafasett
Couldn't load pickup availability
Lúxus silki gjafasett sem sameinar fegurð, þægindi og gæði í einni fullkominni gjöf. Settið inniheldur silki koddaver í stærð 50x70 cm, silki svefngrímu og silki hárteygju – allt framleitt úr 100% Mulberry silki í hæsta gæðaflokki 6A, 22 momme og OEKO-TEX® vottaðri framleiðslu. Þetta eru bestu mögulegu gæði silkis fyrir þá sem sætta sig aðeins við það besta.
Silki er ekki aðeins lúxus efni heldur einnig náttúruleg fjárfesting í húð, hári og betri svefni. Slétt yfirborð 22 momme silkisins dregur úr núningi sem getur valdið hárbroti, úfnu hári og fínlínum á húð.
Koddaverið veitir milda og mjúka snertingu alla nóttina og styður við eðlilegt rakajafnvægi húðar og hárs. Svefngríman lokar birtu á þægilegan hátt og verndar viðkvæmt augnsvæði með silkimjúkri áferð sem andar og er ofnæmislaus. Hárteyjan er hönnuð til að halda hárinu án þess að toga, slíta eða skilja eftir djúp för, sem gerir hana mun betri valkost en hefðbundnar hárteygjur.
Engin skaðleg eða kemísk efni
Heldur raka húðarinnar
Dregur úr hár- og andlitsnúningi
Ofnæmislaust og andar
Frábær gjafavara
Silki fyrir húðina þína
Silki fyrir húðina þína
Augnsvæðið er viðkvæmasta húð andlitsins. Silki dregur ekki raka úr húðinni eins og bómull getur gert og hjálpar þannig til við að viðhalda náttúrulegu rakajafnvægi yfir nóttina.
Slétt yfirborð silkisins dregur úr núningi sem getur annars stuðlað að fínlínum og ertingu. Svefngríman hjálpar einnig við að halda húðvörum á húðinni – ekki í efninu.
Þeir sem þjást af exemi, ofnæmi eða viðkvæmri húð finna oft mikinn mun þar sem silki er náttúrulega ofnæmislaust, kælandi og andar vel.
Silki er byggt úr próteinríkum þráðum sem kallast sericin sem hjálpar til við að minnka ertingu og dreifa náttúrulegum olíum húðarinnar jafnt.
Gæði silkisins skipta máli
Gæði silkisins skipta máli
Góð þumalputtaregla er sú að ef fyrirtæki greina ekki gæðaflokk eða momme á silkivörunum sínum, þá er varan líklega framleidd með lélegum gæðum.
6A gæðaflokkur: Silkigæði er flokkað eftir einkunnarkerfi A til F, þar sem 6A er best. RawForce koddaverin eru aðeins framleidd úr 6A silki sem er gæðamesta og besta silkið. Þetta er ætlað þeim sem sætta sig aðeins við það besta. Silki sem fær einkunnina A er hágæða langþráða silki úr lifruhýði sem er mjög hreint og viðheldur gæðunum um langa tíð.
22 Momme: Mommes(mm), er eining sem er notuð til að mæla gæði silkiefna. Því meira momme samsvarar meiri þéttleika. 11-19 momme þykir nógu gott, 22 telst hágæða og endingargott. 30 eða hærra þykir of þétt fyrir marga.
Mulberry silki: Mórberjasilki er sérstök tegund af silki sem framleidd er af silkiormum sem eru eingöngu fóðraðir á laufum mórberjatjáa. Mórberjasilkiþræðir eru þeir bestu á jörðinni.
Þvottaleiðbeiningar
Þvottaleiðbeiningar
Silki má alls ekki:
✘ Setja í þurrkara
✘ Þvo með heitu vatni
✘ Nota klór
✘ Nota þvottaefni úr dufti
✘ Nota efnahreinsun með trichloroethylene
Þvegið með þvottavél:
✔ Þvo í höndunum eða í þvottapoka
✔ Nota milt, fljótandi þvottaefni fyrir silki
✔ Þvo eingöngu í köldu vatni
✔ Nota silki-/viðkvæma stillingu ef þvegið í vél
✔ Láta loftþorna
Afhending
Afhending
Við sendum með Dropp og póstinum.
Það tekur yfirleitt 0-2 virka daga fyrir pöntunina að berast til þín 📦





